- 29.09.2011 Check out our Blog and Facebook page
- 29.09.2011 Check out our Blog and Facebook page
- 29.09.2011 Check out our Blog and Facebook page
- 07.06.2011 Hotel Highland and Fossbúð
- 31.08.2010 Aurora Forecast Sept - Oct 2010
- Meira..
Hótel Háland - Veitingar og veislur
Þegar þú nú loksins getur snætt dýrindis kvöldverð á íslenska hálendinu, í veitingasalnum á Hótel Háland, er það nokkuð sem hótelið hefur einsett sér að verði eitthvað sem að þér seint gelymist. Alþjóðlegir kokkar hótelsins framreiða dýrindis málsverði úr hreinasta og besta fáanlega hráefni sem völ er á. Okkar sérstaða er fjalla a la carte matseðill hótelsins, þar sem m.a. er að finna fjallalamb af afréttinum, urriða úr fjallavötnunum hér í kring og svo bjóðum við íslenskt hreindýr.
Við gefum hópum kost á að velja um tveggja eða þriggja rétta máltíð eins og að neðan greinir. Þá bjóðum við að sjálfsögðu máltíðir efir séróskum viðskiptavina okkar, endilega hafið samband - við leysum málið.
Vinsamlega athugði að þið þurfið að ganga frá pöntun á mat fyrir hópa í hádegis - eða kvöldverð, með að minnsta kosti viku fyrivara. Kaffi og te er ekki innifalið og verður að panta sérstaklega. Við erum tilbúin að framreiða máltiðir hvar sem er á hálendinu, ef samið er sérstaklega um það. Við höfum mikla reynslu, höfum mörgum sinnum gert þetta með góðum árangri, t.d. í Landmannalaugum, við ýmiss tækifæri og þá bæði fyrir stóra og litla hópa.
Hikaðu ekki við að hafa samband við okkur, láttu í ljós óskir þínar, það er svo okkar að sjá til hvort við getum ekki uppfyllt þær !


