- 31.08.2010 Aurora Forecast Sept - Oct 2010
- 05.03.2010 Ranga in the Financial Times
- 05.03.2010 Eyjafjallajökull eruption
- 20.02.2010 Latest aurora news from Hotel Ranga
- 28.01.2010 Aurora borealis forecast
- Meira..
Hótel Háland - Gistingin
Hótel Háland er opið að sumrinu til frá 15. júní til 7. september, í annan tíma er opið eftir pöntunum fyrir hópa að lágmarki 10 manns.
Eftir að Hótel Háland var opnað í júlí 2005, er það eina gistingin á hálendi Íslands, sem getur staðið undir því nafni að kallast hótel. Það er í raun alveg einstakt að geta nú dvalist á nútímalegu lúxus hóteli á hálendinu, sem býður upp á öll þægindi til hvíldar og hressingar og að njóta um leið fegurðar náttúrunnar. Við ruddum brautina hvað gistingu og alla hótel þjónustu varðar á hálendinu og nú bjóðum við þig hjartanlega velkominn.
Það er okkar ánægja að gera þér til hæfis á alla lund.
Hótel Háland er aðili að Ferðaþjónustu bænda, bær no 671, það telst vera sveitahótel í flokki IV samkvæmt þeirra staðli. Hótelið býður 2 lúxus svítur, 2 fjölskyldu svítur og 16 tveggja manna mjög góð herbergi, öll með baði. Hótel Háland er aðeins 1.4 kílómetra frá Hálendismiðstöðinni á Hrauneyjum - 150 km frá Reykjavík og það er malbikað alla leið í hlaðið. Öllum bílum fært flesta daga ársins.
Það er svolítið öðruvísi en þó alveg tilvalið að halda fundi og vera með ráðstefnur á Hótel Háland – og alveg sérstaklega hvað það varðar að byggja upp hópefli og starfsmannaandann til framtíðar. Ráðstefnusalurinn getur tekið allt að 45-60 manns, mismunandi eftir uppröðun, hann er búinn allri nútíma tækni til fundarhalda.
Hótel Háland er í göngufæri frá virkjuninni í Hrauneyjum, einnig er örstutt að ganga að flúðunum þar sem Hrauneyjafoss var.
Bjóðum eftirfarandi herbergjategundir:
- 16 Superior herbergi, með baði. Cat- IV
- 2 Lúxus svítur 4 + persónur. Cat - IV
- 2 Fjölskyldu svítur 6 + persónur. Cat – IV ( eldunaraðstaða fylgir, morgunverður innifalinn í gistingu. )
- 4 Fjölskylduíbúðir 6 + persónur. Cat – III ( eldunaraðstaða fylgir, morgunverður innifalinn í gistingu. )



